03.03.2014
RHA vann launakönnun fyrir Kópavogsbæ þar sem kannað var hvort kynbundin launamunur væri hjá sveitafélaginu. Niðurstaðan er sú að
kynbundinn munur á leiðréttum heildarlaunum hjá Kópavogsbæ er 3,25% körlum í vil. Könnunin náði til allra fastráðinna
starfsmanna bæjarins sem voru í að minnsta kosti 40% stöðugildi. Alls voru það 1.752 starfsmenn eða 80% allra þeirra sem starfa hjá bænum.
Bæjarstjórn, bæjarstjóri, nefndafólk og tímavinnufólk var þó undanskilið.
Í rannsókninni voru borin saman dagvinnulaun og heildarlaun karla og kvenna en heildarlaun eru dagvinnulaun auk yfirvinnu
og álags. Til að finna út kynbundinn launamun eða óútskýrðan launamun kynjanna var tekið tillit til þátta sem hafa áhrif
á laun, svo sem starfsheiti, lífaldur, vaktavinna, lausar yfirvinnustundir og svið. Nánari upplýsingar má finna hér
27.03.2014
-
28.03.2014
Út er komin rannsóknarskýrsla sem RHA gerði fyrir Jafnréttisstofu um viðhorf stjórnenda fyrirtækja með 25 starfsmenn eða fleiri til
jafnréttismála og mismununar á íslenskum vinnumarkaði. Rannsóknin var hluti af samstarfi Jafnréttisstofu við Mannréttindastofu Íslands
og Fjölmenningarsetur og styrkt af Progress áætlun Evrópusambandsins. Skýrsluna má finna hér.
13.02.2014
RÚV birti í kvöldfréttum sjónvarps þann 7. febrúar sl. frétt um að ekki hefur farið fram úttekt á
samfélagsáhrifum Vaðlaheiðarganga þrátt fyrir umfang framkvæmdarinnar og rannsókna á öðrum þáttum sem hana varða.
Meðal annars var rætt við sérfræðing RHA um málið en miðstöðin hefur gegnum tíðina komið að nokkrum slíkum
verkefnum. Fréttina má sjá
hér.
10.02.2014
20.-23. ágúst næstkomandi verðu haldin Norræn þjóðlistahátíð á Akureyri. RHA - Rannsóknamiðstöð
Háskólans á Akureyri hefur umsjón með ráðstefnunni og fer hún fram í húsakynnum Háskólans á Akureyri. Miðasala
fer fram á www.tradition.is og opnar upp úr miðjum febrúar.
24.01.2014
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Sprotasjóð fyrir skólaárið 2014-2015. Hægt er að sækja um rafrænt á vef
Sprotasjóðs frá 13. jan. til 28. febrúar.
www.sprotasjodur.is
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Vésteinsdóttir hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri
í síma 460-8904 eða í tölvupósti á sv@unak.is
24.01.2014
Allir opinberru Háskólar landsins senda nú frá sér sameiginlega könnun til að kanna afstöðu nemenda og útskrifaðra nemenda til
námsins við skólana og hvernig það nýtist þeim í lífi og starfi. Könnunin er gerð á vegum
samstarfsnets opinberru háskólanna og er kostuð af samstarfinu.
Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri hefur tekið að sér að framkvæma könnunina fyrir þrjá skóla þ.e.
Háskólann á Akureyri, Háskólann á Hólum og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. En Félagsvísindastofnun
framkvæmir könnunina meðal nemenda í Háskóla Íslands. Könnunin er nýr og mikilvægur liður í gæðastarfi
háskólanna og mun nýtast þeim við gerð innra mats deilda og sviða. Með því að senda staðlaða könnun á alla nemendur
ríkisháskólana er verið að auðvelda samanburð á milli skóla og efla gæðastarf skólanna.
09.01.2014
ESPON verkefninu SeGI - Indicators and Perspectives for Services of General Interest in Territorial Cohesion and Development lauk á síðasta ári. Var RHA meðal 11 stofnana
sem þátt tóku í verkefninu og vann Hjalti Jóhannesson einkum að rannsóknum fyrir okkar hönd.