Samfélagshlutverk háskóla
11.11.2011
Í gær var send út netkönnun til akademískra starfsmanna háskólanna og sérfræðinga við rannsóknir. Könnunin er liður
í rannsókn á samfélagslegu hlutverki háskóla sem er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands en
í kjölfar auglýsingar samþykkti Rannsóknarstofa um háskóla að fela Rannsókna- og þróunarmiðstöð HA og
Miðstöð skólaþróunar HA að annast rannsóknina. Myndað var rannsóknarteymi sjö manns og áhersla lögð á að
bakgrunnur þátttakenda væri sem fjölbreyttastur.