RHA hefur lengi átt í samstarfi við Rannsóknamiðstöð Ferðamála (RMF) sem er einnig með aðsetur í Borgum á svæði Háskólans á Akureyri. RHA hefur tekið þátt í fjölbreyttum rannsóknarverkefnum á sviði ferðamála í samstarfi við RMF.
Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Háskólans á Hólum. Auk háskólanna þriggja, tilnefna Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálastofa hvor sinn fulltrúa í stjórn RMF. Markmið miðstöðvarinnar eru að efla rannsóknir á sviði ferðamála, styrkja tengsl háskólastarfs og atvinnulífs og auka þekkingu um ferðamál gegnum innlent og erlent samstarf.
Stefna RMF er að efla rannsóknir og skilning á áhrifum ferðamennsku á hagkerfi, samfélag og umhverfi. Þetta gerir miðstöðin með samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila og atvinnulíf, með útgáfu fræðirita og annarri upplýsingamiðlun og ráðgjöf og með því að standa fyrir ráðstefnum og fyrirlestrum.
Markmið Rannsóknamiðstöðvar ferðamála: