Fyrsti vinnufundur í þriggja ára verkefni á vegum
ESPON áætlunarinnar var haldinn í Svíþjóð
21. - 22. janúar síðastliðinn. Að verkefninu "Indicators and Perspectives for Services of General Interest in Territorial Cohesion and Development" (SeGI) standa 11
háskólar og rannsóknastofnanir í Evrópu undir forystu Konunglega tækniháskólans í Stokkhólmi (KTH).
Rannsakað verður hlutverk margvíslegrar almennrar þjónustu og samspil við þróun byggðar á mismunandi svæðum Evrópu. Hluti af
verkefninu verður "case study" á 10 svæðum og mun íslenska dæmið verða Norðurland eystra. Fyrir hönd RHA/HA munu Hjalti Jóhannesson og Ingi
Rúnar Eðvarsson einkum starfa að rannsókninni.