Allir opinberru Háskólar landsins senda nú frá sér sameiginlega könnun til að kanna afstöðu nemenda og útskrifaðra nemenda til
námsins við skólana og hvernig það nýtist þeim í lífi og starfi. Könnunin er gerð á vegum
samstarfsnets opinberru háskólanna og er kostuð af samstarfinu.
Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri hefur tekið að sér að framkvæma könnunina fyrir þrjá skóla þ.e.
Háskólann á Akureyri, Háskólann á Hólum og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. En Félagsvísindastofnun
framkvæmir könnunina meðal nemenda í Háskóla Íslands. Könnunin er nýr og mikilvægur liður í gæðastarfi
háskólanna og mun nýtast þeim við gerð innra mats deilda og sviða. Með því að senda staðlaða könnun á alla nemendur
ríkisháskólana er verið að auðvelda samanburð á milli skóla og efla gæðastarf skólanna.