Það er sú hugmyndafræði sem Starfsendurhæfingin byggir á sem var verðlaunuð fyrir tilraunaverkefnið Social Return (www.social-return.net) sem
unnið var á árunum 2004 – 2007 í samvinnu Félags- og skólaþjónustu Þingeyinga, Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga,
Framhaldsskólans á Húsavík, Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri og fjögurra annarra erlendra aðila frá
Ítalíu, Hollandi, Litháen og Slóveníu.
Verkefnið hefur áður hlotið Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalagsins í desember 2007 og í desember 2008 fékk verkefnið gæðaverðlaun
frá Landsskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins á Íslandi sem fyrirmyndarverkefni.
Hugmyndafræði Starfsendurhæfingar Norðurlands byggir á fjölþættri námstengdri endurhæfingu og samþættingu á
velferðarþjónustu. Hugmyndafræðin miðar að því að veita þjónustu í nærumhverfi einstaklingsins og að hann axli
ábyrgði á eigin endurhæfingu með virkri þátttöku í mótun hennar. Hugmyndafræðin byggir á samvinnu ólíkra
stofnana og ólikra sérfræðigreina sem veita einstaklingum þjónustu á sviði heilbrigðismála, félagsþjónustu og
menntamála. Þessi aðferðafræði hefur skilað allt að 75% þátttakenda út í vikni að nýju hvort sem er í vinnu eða
í frekara nám.