Miðvikudaginn 18. nóvember n.k. kl:13:00 stendur Rannís fyrir kynningu í Háskólanum á Akureyri.
Annarsvegar verða styrkir Tækniþróunarsjóðs kynntir sem og skattfrádráttur til fyrirtækja vegna rannsókna- og þróunarverkefna. Hinsvegar verður boðið uppá almenna kynningu á Horizon 2020 sem er rannsóknaráætlun Evrópusambandsins.
Dagskrá:
Fundurinn verður haldinn 18. nóvember, kl. 13:00 – 14:30 í Háskólanum á Akureyri, stofu N 201 að Sólborg.
Fundurinn er öllum opinn og eru áhugasamir hvattir til að mæta.