Þann 12. júní næstkomandi verður ráðstefna á vegum Háskólans á Akureyri um framtíðaráskoranir í
sjávarútvegi. Á ráðstefnunni verður framtíð sjávarútvegs rædd frá ýmsum hliðum. Innlendir og erlendir
fræðimenn og atvinnurekendur sem teljast margir hverjir fremstir á sínu sviði munu þar fjalla um fjölbreytt efni. Til dæmis um framtíðarhorfur
þorskstofna í heiminum, fjárfestingarmöguleika í alþjóðlegum sjávarútvegi og um hvað má læra af því sem
vel er gert í fiskveiðistjórnun.Þann 12. júní næstkomandi verður ráðstefna á vegum Háskólans á Akureyri um framtíðaráskoranir í
sjávarútvegi. Á ráðstefnunni verður framtíð sjávarútvegs rædd frá ýmsum hliðum. Innlendir og erlendir
fræðimenn og atvinnurekendur sem teljast margir hverjir fremstir á sínu sviði munu þar fjalla um fjölbreytt efni. Til dæmis um framtíðarhorfur
þorskstofna í heiminum, fjárfestingarmöguleika í alþjóðlegum sjávarútvegi og um hvað má læra af því sem
vel er gert í fiskveiðistjórnun.
Sjávarútvegur hefur verið, er og verður væntanlega í framtíðinni okkar mikilvægasta atvinnugrein. Það vilji hjá
Háskólanum á Akureyri að taka virkan þátt í mótun hans og stuðla að jákvæðri ímynd sjávarútvegs
í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir.
Nánari upplýsingar er hægt að fá á vefsíðunni
http://fisheries.unak.is. Á þeirri
vefsíðu er einnig hægt að skrá sig á ráðstefnuna. Vinsamlegast hafið samband við Láru Guðmundsdóttur (s. 4608900,
laragudmunds@unak.is) varðandi nánari upplýsingar um skráninguna og Hreiðar
Þór Valtýsson (8624493,
hreidar@unak.is) varðandi almennar upplýsingar.
Ráðstefnan verður á ensku