RHA - Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri

Stjórnsýsla rannsókna hefur með höndum umsóknir vegna rannsóknamissera og starfsþjálfunarleyfa, umsóknir í rannsókna- og verkefnasjóði ásamt því að sjá um

Stjórnsýsla rannsókna

Stjórnsýsla rannsókna hefur með höndum umsóknir vegna rannsóknamissera og starfsþjálfunarleyfa, umsóknir í rannsókna- og verkefnasjóði ásamt því að sjá um stigamat aðjúnkta, lektora og dósenta við Háskólann á Akureyri. Þá er veitt ráðgjöf um styrkumsóknir í rannsóknasjóði.

Stjórnsýsla rannsókna er staðsett í húsnæði RHA á 3. hæð í Borgum, rannsókna- og nýsköpunarhúsi Háskólans á Akureyri á Sólborg. Netfangið er: rannsoknir@unak.is.  

Rannsóknamisseri og starfsþjálfunarleyfi: Prófessorar, dósentar, lektorar og aðjúnktar við Háskólann á Akureyri geta sótt um rannsóknamisseri á grundvelli kjarasamnings. Jafnframt geta starfsmenn í stjórnsýslu og stoðþjónustu sótt um starfsþjálfunarleyfi.

Stigamat: Aðjúnktar, lektorar og dósentar Háskólans eiga að skila umsókn vegna stigamats fyrir 1. mars ár hvert. Prófessorar skili inn upplýsingum fyrir1. febrúar ár hvert og sér umsýsla rannsókna um að koma upplýsingum þeirra til vísindasviðs Háskóla Íslands sem sér um stigamat prófessora.  Niðurstöður stigamats geta haft áhrif á laun starfsmanna auk þess sem stigamatsskýrsla er jafnframt umsókn í vinnumatssjóð.  Ritaskrá Háskólans á Akureyri er jafnframt byggð á upplýsingum sem fram koma í skýrslum starfsmanna.

Rannsóknastyrkir og –sjóðir: Umsjón með rannsóknastyrkjum og rannsóknasjóðum er mikilvægur hluti af starfsemi stjórnsýslu rannsókna. Umsýsla eftirtalinna sjóða er á könnu hennar:  Rannsóknasjóður HAHáskólasjóður KEA og Verkefnasjóður Háskólans á Akureyri

Starfsmenn:


Ólína Freysteinsdóttir

Verkefnisstjóri

S: 460 8915

olina@unak.is   

 

 

Viðverutími 

Mánudaga og þriðjudaga   08:00-13:00

Miðvikudag                     08:00-16:00

fimmtudaga og föstudaga  08:00-16:00 

         


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf